Formúla 1

Kvyat: Hættur að njóta mín í Formúlu 1

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Daniil Kvyat viðurkennir að hann hafi hætt að njóta sín í Formúlu 1 eftir stöðulækkun til Toro Rosso. Hann telur að óánægja sín hafi áhrif á frammistöðu sína.

Kvyat var færður frá Red Bull til Toro Rosso til að gera pláss fyrir Max Verstappen hjá Red Bull. Stöðulækkun Rússans kom í kjölfar rússneska kappakstursins þar sem heimamaðurinn gerði dýrkeypt mistök.

Kvyat hefur enungis náð í tvö stig eftir að hann fór aftur til Toro Rosso á meðan liðsfélagi hans, Carlos Sainz hefur náð í 24 stig á sama tíma.

Kvyat telur að skorturinn á sjálfstrausti sem hann er að upplifa núna geti gert hann sterkari í framtíðinni. Hann segirst fyrst þurfa að finna aftur ánægjuna við aksturinn.

Hann segir hlutina þegar á uppleið og að hann muni stefna hærra í þeim níu keppnum sem eru eftir.

„Vonandi eru betri hlutir væntanlegir. Maður verður að vera ánægður með bílinn, maður verður að hafa sjálfstraust og trúa á samstarfið við verkfræðinga liðsins,“ sagði Kvyat.


Tengdar fréttir

Alonso spenntur fyrir bílum næsta árs

Fernando Alonso ökumaður McLaren liðsins í Formúlu 1 spáir því að bílar næsta árs vekji hrifningu ökumanna. Hann gerir ráð fyrir því að þeir eigi eftir að virka vel fyrir ökumenn og áhorfendur.

Segir Schumacher bregðast við meðferð

Fyrrum stjórnarformaður Ferrari, Luca Cordero de Montezemolo, segir að ökuþórinn fyrrverandi, Michael Schumacher, sé loksins farinn að bregðast við meðferð.

Ricciardo vill láta taka sig alvarlega

Daniel Ricciardo segist hafa tekið meðvitaða ákvörðun um að láta meira í sér heyra á þessu tímabili. Hann vill með því sanna að hann láti ekki vaða yfir sig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×