Kvótalausi sjómaðurinn fór í útrás með kvótagróða Sigríður Elva Vilhjálmsdóttir skrifar 7. ágúst 2008 17:35 Ásmundur Jóhannsson.
Ásmundur Jóhannsson, kvótalausi sjómaðurinn, hefur ekki alltaf verið kvótalaus. Árið 1990 hagnaðist hann um sextíu millljónir króna þegar hann seldi hlut sinn í útgerðarfélaginu Festi, þar með talinn kvóta. Eftir að Ásmundur seldi hlut sinn fór hann til Amsterdam þar sem hann stofnaði verslunarfélag. Þaðan fór hann til Brasilíu þar sem hann dvaldi í hálft ár og ætlaði í útgerð. Af því varð ekki en Ásmundur fór þá til Mexíkó þar sem hann dvaldi í fimm ár og reisti gúanóverksmiðju. Hann sneri aftur til Íslands árið 1999. Undanfarið hefur Ásmundur gert út frá Sandgerði án kvóta. Hann hefur með veiðunum viljað vekja athygli á kvótakerfinu, sem hann kallar ólög. Fyrr í dag færði Landhelgisgæslan bát Ásmunds til hafnar og innsiglaði, og á hann yfir höfði sér kæru fyrir veiðarnar. Aðspurður segir Ásmundur sér ekki þykja það skjóta skökku við að selja kvótann fyrst og mótmæla kerfinu svo. „Ég hagnaðist ekki á sölunni á kvótanum," segir Ásmundur, sem segist einungis hafa selt á verði sem miðaðist við tryggingamat skipsins. Öðrum viðmælendum Vísis virðist þó bera saman um að meginþorri verðmætis skipsins hafi verið kvóti. Ásmundur fagnar yfirvofandi kæru vegna veiðanna. Málið sé nú í höndum lögfræðinga, en hann vill að það fari fyrir mannréttindadómstól. „Ég vil að ráðamenn fari að haga sér eins og menn og afnemi þessa kvótavitleysu," segir Ásmundur.
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Ekkert lát á árásum Ísraelsmanna í suðurhluta Líbanon Erlent Marius látinn laus Erlent Fleiri fréttir „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi Sjá meira