Erlent

Kvöldverður breyttist í krísufund

Samúel Karl Ólason skrifar
Shinzo Abe og Donald Trump.
Shinzo Abe og Donald Trump. Vísir/AFP
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, og Shinzo Abe, forsætisráðherra Japan, voru við matarborðið á Mar-a-Lago, sveitaklúbbi Trump í Flórída á laugardagskvöldið, þegar þeir komust á snoðir um eldflaugaskot Norður-Kóreu. Þannig breyttist rólegur kvöldverður í krísufund með litlum fyrirvara.

Aðstoðarmenn hlupu inn í veitingasalinn með skjöl, nýjar upplýsingar og síma, meðal annars frá leyniþjónustum Bandaríkjanna og hópuðust við borð Trump og Abe.

Á meðan sátu aðrir gestir í veitingasalnum og fylgdust með, en borð þeirra Trump og Abe var á miðju gólfi veitingasalsins. Þá fóru þjónar á milli manna á meðan á herlegheitunum stóð og tóku diska af borðum og báru nýja rétti á borð.

Þar sem eina lýsingin í salnum barst frá tunglinu og kertaljósum voru ljós frá símum notuð svo Trump og Abe gætu lesið skjölin um eldflaugaskotið.

Einn gestanna í salnum birti myndir af krísufundinum á Facebook í gær. Þar má sjá að hann stendur nánast við borðið þar sem tveir þjóðarleiðtogar voru að ræða og kynna sér nýjustu vendingar í langvarandi milliríkjadeilu.

Færsla Rich­ard DeAgazio á Facebook ásamt mynd úr veislunni.
Washington Post bendir á að Trump hefur verið gagnrýndur fyrir atvikið og önnur atvik sem snúa að öryggi upplýsinga.

Á einni myndinni má greinilega sjá hvernig sími er notaður svo að Abe geti lesið skjal. Símar búa yfir mörgu öðru en bara ljósum. Í þeim eru til dæmis myndavélar, hljóðnemar og flestir þeirra eru tengdir internetinu.

Hægt er að gera ráð fyrir því að hakkarar á vegum annarra ríkisstjórna hafa beint sjónum sínum að Trump og ríkisstjórn hans og símar gætu reynst vera upptökutæki fyrir slíka aðila. Þá er vitað til þess að Trump notast við gamlan Android síma, sem sérfræðingar hafa sagt að mjög auðvelt sé að komast inn í.

Chelse Clinton, dóttir Hillary Clinton, hefur einnig vakið athygli á málinu og veltir fyrir því fyrir sér hve margir meðlimir Mar-a-Lago sveitaklúbbsins séu mögulega njósnarar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×