Bakþankar

Kvöldmatarkvíði

Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar
Helgarblað Fréttablaðsins fjallaði um kvíðnar konur þar sem fram kom að kröfur frá samfélaginu, sem og þeim sjálfum, fullkomnunarárátta, samanburður og niðurrif í kjölfarið eru meðal orsaka kvíðans.

Ég kannast alveg við þetta og minn veiki punktur er eldamennska. Fyrir svona tíu árum þegar eðlilegt fólk keypti 1944, Betty Crocker og djúpfrystan mat vafðist þetta ekkert fyrir mér. En fljótlega eftir hrun þegar allir fóru að búa til barnamat frá grunni (en þetta er til í krukkum úti í búð!), rækta kryddjurtir og hægelda alls konar, þá bugaðist ég svolítið. 



Þrátt fyrir að eiga ekki hálfan séns og vera fullkomlega áhuga- og getulaus hefur mér samt fundist ég þurfa að standa í þessu. Það var síðan við matarborðið í síðustu viku eftir að ég hafði eytt dýrmætum tíma bölvandi yfir pottunum sem ég áttaði mig á vitleysunni. Tvö elstu börnin borðuðu óeðlilega hægt og færðu matinn til og frá á diskinum. Það var undarleg þögn við borðið. Nærri því rafmögnuð. Það var þó ekki fyrr en litla dýrið, sem er greinilega ekki orðið nógu meðvirkt, sagði: „Ojjj, mamma. Þetta er ógeðslegur matur. Ég vil ab-mjólk og músli,“ sem hin horfðu á mig stórum augum og óskuðu þess heitast í veröldinni að fá eitthvað beint úr fernu, kassa eða dollu í kvöldmatinn.

Ég safnaði diskunum saman, dauðfegin að þurfa ekki að borða þetta sjálf og útbjó dýrindis kvöldmatarbröns. Alveg úr öllum fæðuflokkum, sko. Það létti aldeilis yfir börnunum og þau bentu mér fallega á að þau fá heitan mat í skólanum á hverjum degi. Óþarfi að eyða tíma í eldamennsku, mamma. Þú gerir líka svo góð skyr-búst og brauð í ofni. Og ávaxtasalat. Spagettí kannski. Mér fannst þau reyndar ganga fulllangt þegar þau stungu upp á að hafa pítsu á aðfangadagskvöld. En það er komið á hreint: ENGINN á heimilinu gerir kröfu um heitan kvöldmat. Og skítt með samfélagið. Ég er hætt keppni.

Næst á dagskrá er að henda hálfprjónuðu peysunni sem ég mun aldrei klára. (Djók. Hef ekki einu sinni fitjað upp.)


Tengdar fréttir






×