Lífið

Kvöldmáltíð varaborgarfulltrúa kostaði minna en 248 krónur

Bjarki Ármannsson skrifar
Máltíðir gerast ekki mikið ódýrari en hjá fjölskyldu Lífar Magneudóttur í kvöld.
Máltíðir gerast ekki mikið ódýrari en hjá fjölskyldu Lífar Magneudóttur í kvöld. Vísir/GVA/Pjetur
„Þetta smellpassaði í þetta sinn. En ég fékk mér líka bara eina bollu,“ segir Líf Magneudóttir, varaborgarfulltrúi Vinstri grænna, sem deildi því með Facebook-vinum sínum í kvöld að henni hefði tekist að borða kvöldverð sem kostaði minna en 248 krónur á mann.

„Ég fékk mér kjötfarsbollur og kartöflumús og við erum sex á heimilinu,“ segir Líf. „Maðurinn minn hélt að ég væri ekki í mat og þess vegna keypti hann þetta. Ég semsagt borða ekki kjötfars. Svo var ég bara í mat. En þetta er náttúrulega einn ódýrasti maturinn sem þú getur keypt.“

Upphæðin 248 krónur vísar að sjálfsögðu til umræðunnar um frumvarp fjármálaráðherra um breytingar á virðisaukaskatti, þar sem tekið var dæmi um fjölskyldu sem eyðir 248 krónum á mann í hverja máltíð. Líf bendir á að þar sem sex manns eru í fjölskyldu hennar, njóti þau ákveðinnar stærðarhagkvæmni.

„Þannig að kvöldmáltíðin er oft í kringum þetta,“ segir hún. „Það nefnilega skiptir máli hvort maður er einn eða sex.“

Þótt að máltíðin hafi ekki verið dýr, á Líf hinsvegar ekki von á því að borða aðra slíka í bráð.

„Ég held að ég borði kjötfars einu sinni á ári og þetta hafi verið það skiptið,“ segir hún.


Tengdar fréttir

Ríkið segir 250 krónur duga fyrir máltíðinni

Gert er ráð fyrir að það kosti 745 krónur að fæða hvern einstakling á dag. Fjögurra manna fjölskylda verji 92 þúsund krónum í mat og drykk á mánuði. Þetta eru þær tölur sem liggja til grundvallar í frumvarpi um breytingar á virðisaukaskatti.

Segir ekkert vanmat á matarkostnaði fjölskyldna

Fjármálaráðherra segir breytingar á virðisaukaskatti og afnám vörugjaldi lækki neysluvísitöluna og auki kaupmátt. Ekkert í frumvörpum segi að hver einstaklingur eyði 248 kr. í hverja máltíð.

Bryndís óvinsæl innan Sjálfstæðisflokksins

Brynjar Níelsson veltir því upp hvort Bryndís Loftsdóttir varaþingmaður ætti kannski að segja sig úr flokknum. Sjálfstæðismenn hugsa Bryndísi þegjandi þörfina.

Þingið á að fara yfir neysluviðmiðin

Sigurður Ingi Jóhannsson segir augljóst að þingið sé akkúrat í þeirri stöðu að yfirfæra forsendur fyrir breytingum á virðisaukaskatti.

Neysluviðmiðin skoðuð að nýju reynist þess vera þörf

Fjármálaráðuneytið skýrir ekki hvers vegna kaup á mat á veitingahúsum og í mötuneytum eru ekki flokkuð með matarútgjöldum í forsendum virðisaukaskattsfrumvarpsins. Viðmið verða endurskoðuð reynist þau röng.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×