Innlent

Kvöldfréttir Stöðvar 2 í beinni

Höggin voru látin dynja á Birnu Brjánsdóttur þar sem hún lá í aftursæti Kia Rio bifreiðar í janúar síðastliðnum. Þetta sagði sérfræðilæknir í réttarmeinafræði við aðalmeðferð málsins í dag, en fjallað verður um það í fréttum Stöðvar tvö klukkan hálf sjö.

Þá verður rætt við lögfræðing hjá Neytendasamtökunum sem segir að kaupendum fasteigna beri ekki skylda til að greiða sérstaka kaupendaþóknun sem innheimt er á flestum fasteignasölum. Loks ræðum við við íslenskan upplýsingafulltrúa NATO í Afganistan um ákvörðun Bandaríkjaforseta um að halda bandarísku herliði í landinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×