Innlent

Kvöldfréttir Stöðvar 2 í beinni

Mislingar hafa verið staðfestir í níu mánaða gömlu barni hér á landi. Barnið hafði dvalist með fjölskyldu sinni í Tælandi og kom til landsins 2. mars, en veiktist 14. mars síðastliðinn. Barnið er óbólusett vegna ungs aldurs.

Fjallað verður nánar um þetta og rætt við sóttvarnalækni í fréttum Stöðvar tvö klukkan hálf sjö. Þar hittum við líka Brynju Dan Gunnarsdóttur sem nýlega leitaði uppruna síns á Sri Lanka og systur hennar, sem loksins er komin til landsins eftir baráttu við kerfið.

Loks verðum við í beinni útsendingu frá veisluhöldum í tilefni af alþjóðlega Downs-deginum, sem haldinn er hátíðlegur í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×