Innlent

Kvöldfréttir Stöðvar 2 í beinni

Meðferð við barnagirnd getur skilað árangri, segir sálfræðingur manns sem haldinn er slíkri girnd. Rætt verður við manninn og sálfræðinginn í fréttatíma Stöðvar tvö klukkan hálf sjö.

Þar verða einnig sagðar nýjustu fréttir af hryðjuverkaárásinni í London og rætt við félagsmálaráðherra um mögulegar leiðir til að bregðast við neyðarástandi sem hann segir ríkja á húsnæðismarkaði á höfuðborgarsvæðinu.

Loks verðum við í beinni útsendingu frá góðgerðarkvöldverði sem hópur Sýrlendinga hér á landi heldur nú til styrktar Krafti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×