Innlent

Kvöldfréttir Stöðvar 2 í beinni

Raunveruleg hætta er á að Samfylking og Björt framtíð detti út af þingi samkvæmt könnun þrír sex fimm - Sjálfstæðismenn eru með afgerandi forystu. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld.

Þar verður einnig rætt við fegurðardrottninguna Örnu Ýr sem er komin heim. Hún segir að illa hafi verið farið með keppendur í Miss Grand International en sjálf margtognaði hún á ökkla við æfingar.

Þá rýnum við í kosningaauglýsingarnar og sjáum brot úr því besta. Þetta og miklur meira til í kvöldfréttum Stöðvar 2, klukkan 18:30 á samtengdum rásum Stöðvar 2 og Bylgjunnar og í beinni útsendingu á fréttavefnum Vísi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×