Innlent

Kvöldfréttir Stöðvar 2: Rifin á hárinu út um gluggann á bílnum í Grindavík því hún var dóttir Annþórs

Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar
Sara Lind Annþórsdóttir er 21 árs nýútskrifaður snyrtifræðingur. Sara er dóttir Annþórs Kristins Karlssonar, síbrotamanns sem afplánar nú sjö ára fangelsisdóm á Litla Hrauni eftir að hafa verið fundinn sekur um sérstaklega hættulega líkamsárás, ólögmæta nauðung, frelsissviptingu og tilraunir til fjárkúgunar.

Annþór hefur verið í fangelsi mest allt líf Söru en hún segist hafa þurft að líða fyrir að vera dóttir föður hans frá unga aldri. Hún hefur orðið fyrir allskyns fordómum, aðkasti og kjaftasögum vegna föður síns, meðal annars frá lögreglu.

Rætt verður við Söru í fréttum stöðvar 2 klukkan 18.30 og í Íslandi í dag strax að loknum fréttum.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×