Innlent

Kvöldfréttir Stöðvar 2: Fjórtán ára transstrákur í opinskáu viðtali

Nadine Guðrún Yaghi skrifar
Leó Erling Ágústsson er 14 ára transstrákur sem kom út úr skápnum fyrr á árinu. Hann segir ýmsar hugsanir hafa leitað á sig þegar fór að renna upp fyrir honum að honum hefði verið úthlutað vitlausu kyni við fæðingu.

„Æji, af hverju er þetta að gerast? Ég vil ekki að þetta sé að gerast.“

Leó Erling hefur ekki enn undirgengist aðgerð og er ekki viss um að hann vilji nokkurn tíma fara í skurðaðgerð á kynfærum, eins og þær eru framkvæmdar í dag.

Ítarlegt viðtal við Leó Erling Ágústsson og móður hans verður í kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld.

Fréttir hefjast, nú sem endranær, á slaginu 18.30




Fleiri fréttir

Sjá meira


×