Innlent

Kvöldfréttir Stöðvar 2: „Rosalega erfitt að þurfa að fara gegn vinnuveitenda sínum“

Ólöf Skaftadóttir skrifar
„Það er rosalega erfitt að þurfa að fara gegn vinnuveitenda sínum til að tryggja þeirra [barnanna] velferð. Á svo mörgum tímapunktum hefði verið svo miklu auðveldara fyrir okkur að flytja aftur inn í húsnæðið, hætta að spyrja þessara spurninga og hætta þessari baráttu,“ segir séra Karen Lind Ólafsdóttir, eiginkona Páls Ágústs Ólafssonar, sóknarprests á Staðastað á Snæfellsnesi.

Hjónin segja þjóðkirkjuna hafa brugðist algjörlega í máli sem á rætur sínar að rekja til ársins 2014, þegar hjónin tóku við íbúðarhúsinu á prestsetursjörðinni á Staðastað.

Upp komst um myglu í húsinu sem þau hjónin segja að hafi haft gríðarleg áhrif á alla fjölskylduna, sérstaklega ungan son þeirra hjóna sem glímir við mikinn astma.

Eftir að ráðist var á endurbætur á húsinu vildi kirkjan að prestsfjölskyldan flytti að nýju á Staðastað en hjónin drógu í efa að með viðgerðunum hafi í raun verið komist fyrir vandann - sem hafi verið mikil mygla.

Þau hafi sýnt sérfræðingum frá verkfræðistofunni Eflu myndir af svörtum veggjum í húsinu. Bæði þau sjálf og Efla hafi sent kirkjunni spurningalista varðandi endurbæturnar, en kirkjan neiti að svara hverjir unnu verkið og hvernig var staðið að því.

„Þetta hefur verið svo mikil barátta, en þegar ég hugsa um að pakka dóti barnanna minna niður og fara aftur með þau inn í húsið og vona bara það besta - þá líður mér eins og ég geti ekki horft framan í þau og liðið vel sem mamma þeirra.“

Ítarlega verður fjallað um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2, sem hefjast á slaginu 18.30, að vanda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×