Innlent

Kviknaði í strætó á Sæbraut og í fólksbíl á Gullinbrú

Eldur kom upp í tveimur bílum samtímis klukkan hálfátta í morgun og fór slökkvilið á báða staðina. Annarsvegar var um eld að ræða í strætó á Sæbrautinni en hinsvegar í fólksbíl við Gullinbrú á Höfðabakka.

Engan sakaði í strætónum og ökumaður fólksbílsins slapp einnig ómeiddur en bíllinn skemmdist þó mikið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×