Innlent

Kviknaði í rúmfötum í Árbæ

Bjarki Ármannsson skrifar
Vísir/Stefán
Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út nú fyrir stuttu eftir að það kviknaði í rúmfötum í Funahöfða í Árbænum. Um er að ræða verkstæði með íbúðum á efri hæð.

Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðsstöðinni í Skógarhlíð hljómaði tilkynning til slökkviliðsins ekki vel og var því sent út frá öllum stöðvum. Nú er hinsvegar búið að slökkva eldinn og búið að kalla mannskapinn til baka.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×