Innlent

Kviknaði í húsbíl á Stokkseyri

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Slökkvilið og lögregla á Suðurlandi slökktu eld í húsbíl nú síðdegis á Stokkseyri.
Slökkvilið og lögregla á Suðurlandi slökktu eld í húsbíl nú síðdegis á Stokkseyri. vísir/Stefán
Uppfært kl. 16:15: Á fjórða tímanum í dag voru slökkvilið og lögregla á Suðurlandi kölluð út vegna elds sem logaði í húsbíl á Stokkseyri. Ekki var rétt eins og sagði í upphaflegri útgáfu þessarar fréttar að útkallið hefði verið í uppsveitir Árnessýslu. Búið er að slökkva eldinn en mikill eldur var í bílnum og rannsakar lögregla nú eldsupptök, samkvæmt upplýsingu frá lögreglunni á Suðurlandi.

Slökkvlið og lögregla á Suðurlandi eru nú á leið í uppsveitir Árnessýslu þar sem eldur logar í bíl.

Þegar Vísir náði sambandi við lögregluna fengust litlar upplýsingar um hvað hefði gerst eða hvort einhver væri í bílnum þar sem útkallið hafði komið fyrir fimm mínútum og viðbragðsaðilar eru á leið á staðinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×