Innlent

Kviknaði í gámi við Castello í Kópavogi

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Slökkvilið var kallað til.
Slökkvilið var kallað til. Vísir
Slökkvilið var kallað að Castello í Kópavogi á ellefta tímanum í morgun þar sem kviknað hafði í ruslagámi.

Starfsmaður Castello kom að eldinum þegar hann mætti til vinnu í morgun. Hann hringdi á lögreglu. Slökkvilið kom á staðinn og slökkti eldinn.

Að sögn lögreglu var um lítinn eld að ræða og engin nærliggjandi hús eða munir voru í hættu. Lögregla hefur engan grunaðan um íkveikju.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×