Innlent

Kviknaði í bíl á Breiðholtsbraut

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Frá vettvangi í dag.
Frá vettvangi í dag. vísir/friðrik þór
Tilkynning um eld í bíl á Breiðholtsbraut barst slökkviliði höfuðborgarsvæðisins um klukkan hálfeitt í dag en kona og barn voru í bílnum.

Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu komust þau út af sjálfsdáðum og voru aldrei í neinni hættu. Þau voru tekin inn í sjúkrabíl sem kom á staðinn og skoðuð þar en þau slösuðust ekki.

Eldurinn var mestur í vélarrými bílsins en ekki er vitað hvers vegna kviknaði í. Búið var að slökkva eldinn um klukkan eitt og er búið að fjarlægja bílinn af vettvangi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×