Innlent

Kviknaði í bíl á Breiðholtsbraut: Andrea Ósk vill hafa uppi á bjargvættum sínum

Atli ísleifsson skrifar
Andrea Ósk Frímannsdóttir og sonur hennar, Darri Þór, fjögurra mánaða.
Andrea Ósk Frímannsdóttir og sonur hennar, Darri Þór, fjögurra mánaða. Mynd/Facebook/Friðrik Þór
„Þegar ég er þarna á ljósunum lít ég til hliðar og sé mann sem öskrar svo á mig að það sé eldur undir bílnum,“ segir Andrea Ósk Frímannsdóttir sem lenti í mjög óþægilegu atkviki þegar eldur kom upp í bíl hennar á Breiðholtsbraut skömmu eftir hádegi í dag.

Andrea Ósk var á leið til Keflavíkur til foreldra sinna með fjögurra mánaða gamlan son sinn þegar atvikið varð. Hún vill nú hafa uppi á bjargvættum sínum til að þakka þeim fyrir.

Andrea segist hafa hlaupið út úr bílnum eftir að maðurinn öskraði á hana og tekið son sinn úr bílnum. „Í þvílíkri geðshræringu rykkti ég barnið úr bílnum. Strákur, sem ég býst við að sé sonur mannsins, hringir þá í Neyðarlínuna en maðurinn sem bjargaði mér og annar sem var í bílnum fyrir aftan höfðu þá náð að bjarga öllu úr bílnum – vagninn, fötin, gleraugin mín, lykla og allt annað – áður en slökkviliðið kom á vettvang. Þetta var ótrúlegt,“ segir Andrea Ósk, en skömmu síðar var kominn upp mikill eldur í bílnum.

Hún segist ekki hafa tekið eftir að eitthvað amaði að. „Ég tók ekki eftir neinu. Það var engin brunalykt eða neitt, enda var þetta undir bílnum. Ég var meira að segja á leiðinni að taka bensín þannig að ég var sem betur fer ekki komin þangað þegar þetta gerðist.“

Geturðu lýst þessum mönnum eitthvað?

„Þetta var maður svona um fimmtugt. Hann sagðist heita Jón Einarsson. Það eru margir sem heita þessu nafni og mér hefur ekki tekist að hafa uppi á honum. Það var annar maður með honum, um tvítugt, sem ég geri ráð fyrir að sé sonur hans.“

Andrea segir að hún og foreldrar hennar vilji endilega ná tali af þessum mönnum til að þakka þeim fyrir. „Maður vill líka þakka þeim fyrir þegar maður er kominn úr þessari geðshræringu sem ég var í þegar þetta gerðist.“


Tengdar fréttir

Kviknaði í bíl á Breiðholtsbraut

Tilkynning um eld í bíl á Breiðholtsbraut barst slökkviliði höfuðborgarsvæðisins um klukkan hálfeitt í dag en kona og barn voru í bílnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×