Bíó og sjónvarp

Kvikmyndahátíð framhaldskólanna fer fram um helgina

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hátíðin fer fram um helgina.
Hátíðin fer fram um helgina. vísir
Kvikmyndahátíð framhaldskólanna, K.H.F. verður haldin í annað sinn og í þetta skipti verður hún í Bíó Paradís 6. febrúar n.k.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá forsvarsmönnum hátíðarinnar en tilgangur hennar er að gefa nemendum framhaldsskóla tækifæri til að koma saman og sjá kvikmyndir sem framleiddar eru í hinum ýmsu  framhaldsskólum landsins.

Hugsanlega leynast í hópnum kvikmyndagerðarmenn  framtíðarinnar á Íslandi. Vegleg verðlaun eru í boði og fer verðlaunaafhending fram í lok  hátíðar þar sem besta myndin, besta tæknilega útfærða myndin og besta leikna myndin  hljóta þau.

Heiðursgestir hátíðarinnar afhenda verðlaunin, en í ár eru þeir leikstjórinn Eva Sigurðardóttir og fyrrverandi borgarstjóri og grínisti Jón Gnarr. Þrír þekktir uppistandarar  verða með skemmtiatriði. Allir eru velkomnir á hátíðina og þá sérstaklega  framhaldsskólanemendur. Hátíðin hefst kl 13.00 þann 6. febrúar í Bíó Paradís, aðgangur er ókeypis.

Viðtal við Jón Gnarr





Fleiri fréttir

Sjá meira


×