Lífið

Kvikmyndafólk í stuði

Viktoría Hermannsdóttir skrifar
Friðrik Þór
Friðrik Þór vísir/stefán
Sænski leikstjórinn Ruben Östlund hefur vakið töluverða athygli síðan hann kom hingað fyrir helgi á vegum RIFF-hátíðarinnar.

Á föstudagskvöld naut hann meðal annars félagskapar Friðriks Þórs Friðrikssonar leikstjóra og Elísabetar Rónaldsdóttur klippara á Snapsi.

Elísabet er sjálf nýsnúin heim frá Hollywood þar sem hún var að klippa nýjustu kvikmynd Keanu Reeves.

Það er svo von á fleiri erlendum gestum á vegum RIFF til landsins á næstu dögum, meðal annars kemur breski leikstjórinn Mike Leigh til landsins á þriðjudag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×