Bíó og sjónvarp

Kvikmynd um umdeildasta leikstjóra Ítalíu á leiðinni

Þórður Ingi Jónsson skrifar
Pasolini við tökur árið 1970.
Pasolini við tökur árið 1970. Getty
Bandaríski leikstjórinn Abel Ferrara ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur en nú er kominn út stikla fyrir nýju myndina hans Pasolini sem fjallar um hinn fræga og umdeilda ítalska leikstjóra Pier Paolo Pasolini. Seinasta mynd Ferraras, Welcome To New York, fjallaði um annan umdeildan mann, Dominique Strauss-Kahn, fyrrverandi forstjóra Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.

Stórleikarinn Willem Dafoe leikur Pasolini en sá var myrtur úti á götu eftir að hann gaf út myndina Saló, or the 120 Days of Sodom. Sú mynd er líklega með umdeildari myndum allra tíma en hún er hárbeitt og hryllileg ádeila á fasismann. Pasolini var sjálfur kommúnisti og hafa því sprottið upp fjölmargar samsæriskenningar um dauða hans.

Mynd Ferrara fjallar um dagana sem leiddu upp að morði þessa stórmerkilega leikstjóra. Hér fyrir neðan má sjá stikluna að Pasolini.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×