Skoðun

Kvíði - Ekkert smámál

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir skrifar
Íslendingar eiga heimsmet í notkun þunglyndislyfja og um daginn mættu 600 manns á fræðslufund foreldrafélaga í Kópavogi um kvíða og þunglyndi barna. Þessar staðreyndir segja meira en mörg orð um geðheilbrigðisþjónustu á Íslandi. Við eigum fjöldann allan af frábærum sérfræðingum á sviði geðheilbrigðismála en takmarkað aðgengi er að þjónustunni nema fólk eigi þeim mun meira af peningum.

Loksins geðheilbrigðisstefna

Í vor samþykkti Alþingi geðheilbrigðisstefnu og aðgerðaráætlun á grundvelli þingsályktunar sem ég flutti. Þar er m.a. annars lagt til að framboð sálfræðiþjónustu í heilsugæslu verði aukið, komið verði á fót geðheilsuteymum, barna- og unglingageðdeild Landspítala verði styrkt og einnig að stuðningur við börn sem eiga foreldra með geðvanda verði aukinn.

Næstu skref

Geðheilbrigðisstefnan er mikilvægt skref en við í Samfylkingunni viljum gera miklu betur. Við ætlum að stórauka fjármagn til heilsugæslunnar svo að m.a. verði hægt að sinna geðheilbrigðisþjónustu betur með fjölbreyttum meðferðarúrræðum. Um þriðjungur þeirra sem leita til heilsugæslunnar glíma við tilfinningavanda.

Oft er lausnin sú að skrifa upp á geðlyf því skortur er á ódýrum meðferðarúrræðum. Andleg vanlíðan er ekki lúxusvandamál heldur veruleiki fjölmargra. Þá munum við setja fjármuni í að ráða sálfræðinga í alla framhaldsskóla sem veiti ókeypis þjónustu í samræmi við þingsályktun sem ég lagði fram en komst ekki á dagskrá þingsins. Við munum einnig vinna markvisst að því að stytta biðlista barna og fullorðinna eftir greiningu og tryggja viðeigandi þjónustu í kjölfarið. Tíminn sem beðið er eftir greiningu er erfiður og það er algjörlega óþolandi að fjöldinn allur af fólki búi við skert lífsgæði um mánaða og árabil vegna langra biðlista.

Með því að veita fólki ódýra og góða þjónustu snemma má koma í veg fyrir ýmsa líkamlega kvilla, brotthvarf úr skóla, fíknisjúkdóma og draga úr örorku. Áætlanir Samfylkingarinnar kosta peninga en í raun eru þetta smáaurar þegar litið er til þess samfélagslega ábata sem aukin vellíðan og hamingja fela í sér.




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×