Menning

Kvenleikinn í listum

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Hildur ætlar að ræða um hina fullkomnu kvenímynd í fyrirlestrinum.
Hildur ætlar að ræða um hina fullkomnu kvenímynd í fyrirlestrinum.
„Ég ætla að fjalla um félagslega og menningarlega mótaðar hugmyndir um kvenleika og með hvaða hætti þær birtast í menningu og listum.“ Þetta segir Hildur Friðriksdóttir, meistaranemi í félagsvísindum við Háskólann á Akureyri, um efni fyrirlestrar sem hún heldur í dag klukkan 17 í Listasafninu á Akureyri, Ketilhúsi. Yfirskriftin er: Hin fullkomna kvenímynd.

Hildur kveðst einnig ætla að tala um listakonur sem hafa notað listsköpun til að miðla pólitískri ádeilu á útlitskröfur samtímans.

Hildur útskrifaðist með BA-próf í nútímafræði við HA 2013 og stundar nú meistaranám í félagsvísindum og diplómanám í menntunarfræðum við sama skóla.

Þetta er annar fyrirlestur ársins hjá Listasafninu á Akureyri. Þeir fara fram í Ketilhúsi á hverjum þriðjudegi klukkan 17. Aðgangur er ókeypis.

Fyrirlestraröðin er samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, Verkmenntaskólans á Akureyri, Háskólans á Akureyri og Myndlistaskólans á Akureyri.

Á meðal annarra fyrirlesara vetrarins eru Eiríkur Stephenson og Hjörleifur Hjartarson (Hundur í óskilum), Margeir Dire Sigurðsson, Guðmundur Heiðar Frímannsson, Katrín Erna Gunnarsdóttir, María Rut Dýrfjörð og Jón Páll Eyjólfsson.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×