Nú er hinn mikla mánuður veisluhalda að ganga í garð og því ekki seinna vænna en að skoða hvað er gott að eiga í fataskápnum yfir hátíðarnar.
Kvenleg tíska í anda áttunda áratugarins, þar sem hnésíðu pilsin eru í lykilhlutverki, er áberandi í jólatískunni ásamt buxnadrögtum og hinni klassísku hvítu skyrtu.
Svarti jakkinn.
Svarti jakkinn Svartur jakki getur flikkað upp á hvaða klæðnað sem er og passar við kjóla, pils og buxur.
Michael Kors, Balmain og Emilio Pucci eru meðal þeirra hönnuða sem hafa mikla trú á svarta jakkafatajakkanum og þá sérstaklega með hvítri skyrtu. Einfalt en glæsilegt.
Hnésíð pils.
Hnésíð pils Hnésíð pils taka við af þeim stuttu samkvæmt tískuheiminum og er það kærkomin tilbreyting.
Þetta pils sameinar margar tískubylgur í einu, en gegnsæ efni, vínrauði liturinn og síddinn verða áberandi í ár. Einnig ber að geta þess að klaufin er að koma aftur á kjóla eða pils. Diane Von Furstenberg og Michael Kors bættu bæði klaufum á pils og kjóla í sýningum sínum.
Hálsmen frá Topshop.
Skartið Í ár eru skartgripir einfaldir en áberandi. Stór hálsmen, armbönd og hringir setja punktinn yfir i-ið en hafa ber í huga að nota þetta ekki allt í einu.
Eitt gott tískuráð er hlaða á sig því skarti sem maður vill nota en fjarlægja svo allt nema eitt áður en gengið er út um dyrnar.
Loðkragi frá Mýrinni.
Loðkragi Það skiptir litlu máli hvort loðkraginn er úr ekta skinni eða gervi en skinnið bætir glamúr við hvaða flík sem er.
Kragann er hægt að nota við ullarkápuna, svarta jakkann, við kjólinn, peysuna eða skyrtuna.