Innlent

Kveiktu í endurvinnslugámi við Ingunnarskóla

Eldur gaus upp í endurvinnslugámi við Ingunnarskóla í Grafarholti um miðnætti og var slökkviliðið kallað á vettvang. Plastumbúðir voru í gámnum þannig að töluverðan reyk lagði upp frá honum, en eldurinn var slökktur á skammri stundu og var skólahúsið ekki í hættu.

Tveir ungir piltar voru handteknir í grenndinni og viðurkenndi annar þeirra  að hafa kveikt í gámnum með flugeldi. Málið var afgreitt í samráði við foreldra þeirra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×