Golf

Kveikti bál með golfsveiflunni

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Myndin tengist fréttinni ekki neitt.
Myndin tengist fréttinni ekki neitt. vísir/getty
Rosalegasta golfsveifla sögunnar var tekin í Kaliforníu um daginn. Hún endaði sem skógareldur.

Hér er ekki verið að ljúga neinu. Menn þurfa að passa sig er þeir sveifla kylfu í miklum þurrki í Kaliforníu.

Þessi ónefndi kylfingur sló kylfu sinni í stein og kveikti þannig neista sem kveikti bálið.

Það var lítið í upphafi en endaði sem skógareldur sem náði yfir 60 hektara svæði.

Það þurfti alls 140 slökkviliðsmenn og þrjár þyrlur til þess að slökka eldinn. Allt út af einni golfsveiflu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×