Innlent

Kveikt í blaðagámi við Víkurskóla

Víkurskóli er í Grafarvogi.
Víkurskóli er í Grafarvogi. Vísir/Pjetur
Eldur var kveiktur í blaðagámi við Víkurskóla í Reykjavík og var kallað á slökkvilið um klukkan fjögur í nótt. Þá logaði talsverður eldur í gámnum og nálægur fatasöfnunargámur frá Rauða krossinum var farinn að sviðna að utan.

Greiðlega gekk að slökkva eldinn en reykur mun hafa borist inn í fatagáminn þannig að það sem í honum var kann að vera ónýtt. Ekki er vitað hver kveikti í blaðagámnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×