Sport

Kveikt í bíl Mayweather

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Mayweather rúntar um Bretlandseyjar þessa dagana.
Mayweather rúntar um Bretlandseyjar þessa dagana. vísir/getty
Floyd Mayweather er að ferðast um Bretlandseyjar þessa dagana og þessi umdeildi hnefaleikakappi á ekki bara aðdáendur í hverju horni.

Hann mætti til að svara spurningum aðdáenda í Birmingham um nýliðna helgi áður en hann sá Tony Bellew vinna frekar óvæntan sigur á David Haye í þungavigtarboxbardaga.

Á meðan Mayweather svaraði spurningum áhorfenda en á meðan var kveikt í einum af þeim bílum sem Mayweather og félagar mættu á til Birmingham. Ekki aðdáendur þar á ferð.

Lögreglan segir að framrúða hafi verið brotin á bílnum. Bensíni síðan hellt inn í bílinn áður en kveikt var í.

Verið er að rannsaka málið og ekki búið að finna sökudólgana.

Box



Fleiri fréttir

Sjá meira


×