Bílar

Kveikt í 945 bílum í Frakklandi um áramótin

Finnur Thorlacius skrifar
Sá leiði ósiður heldur áfram um hver áramót í Frakklandi að kveikja í bílum og valda með því miklu tjóni. Þessi áramót voru engin undanteknig frá því þar sem kveikt var í 945 bílum. Þessarar hrinu skemmdarverka fór fyrst að gæta uppúr 1990 í Strasbourg í austurhluta Frakklands, en þar býr mikið af fátæku fólki.

Þaðan hefur ósiðurinn breiðst út til annarra borga í Frakklandi á nýarsnótt. Talið er að óánægð ungmenni sem hafa orðið undir í frönsku þjóðfélagi standi fyrir þessum íkveikjum. Þessa nýliðna nýársnótt var kveikt í 17% fleiri bílum en árið á undan og því virðist þessu bylgja skemmdarverka aðeins vera í vexti.

Sem betur fer meiddist enginn alvarlega í þessum hildarleik þetta árið, en tjónið er sannarlega mikið. Franska lögreglan handtók 454 einstaklinga sem grunaðir eru um íkveikjur í bílum þessa dramtísku nótt og voru 301 þeirra settir undir lás og slá.






×