Lífið

Kvaddi Kórinn ber að ofan: „Ekki vera hrædd við að vera þið sjálf“

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Síðari tónleikar kanadísku poppstjörnunnar Justin Bieber fóru fram í Kórnum í gærkvöldi. Líkt og fyrri tónleikunum var söngvarinn á einlægu nótunum en það er mat undirritaðrar sem fór einnig á tónleikana á fimmtudagskvöld að í gær hafi verið mun meiri kraftur í Bieber og að honum hafi liðið betur á sviðinu.

Þannig náði hann mun betur til áhorfenda og spjallaði meira en á fyrri tónleikunum. Það má jafnvel segja að hann hafi opnað hjarta sitt fyrir allan peninginn í gærkvöldi en áður en hann tók lagið Life is Worth Living sagði hann að lífið væri ekki alltaf auðvelt.

„Mörg ykkar gætuð spurt eða sagt: „Justin, þú hefur allt. Hvaða erfiðleika gætir þú mögulega verið að glíma við?“ Við erum öll óörugg, við öll eigum okkar ferðir og erfiðleika. [...] Hafið þið einhvern tímann velt því fyrir ykkur hvort að lífið sé þess virði að lifa því? Ég vil segja að lífið er þess virði að lifa því?“ sagði Bieber og renndi sér síðan í samnefnt lag við gríðarlegan fögnuð áhorfenda.

Líkt og á fyrri tónleikunum var uppklappslagið hið vinsæla Sorry en í því dansar Bieber í rigningunni ásamt dönsurum sínum. Í gær kom hann fram ber að ofan við mikla kátínu viðstaddra og kvaddi Kórinn með þessum orðum:

„Ekki vera hrædd við að vera þið sjálf. Ég elska ykkur svo mikið. Takk kærlega fyrir mig!“

Hér að ofan má sjá brot úr Sorry frá því í gær og hér fyrir neðan nokkur myndbönd sem tónleikagestir deildu í gær á Instagram.

My husband #purposetouriceland #jbiceland #purposetour

A video posted by Karen Líf Jóhannsdóttir (@karenlifj1) on

'You should go and love yourself' @justinbieber #jbiceland #justinbieber #purposetour

A video posted by αиÍтα вʝÖяк Kára DÓTTIR (@anitakaradottir) on

Justin Bieber! #jbiceland

A video posted by Aðalheiður S. Magnúsdóttir (@heidasm) on


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×