Lífið

Kúrbítspítsa úr þætti Völu Matt

Völu til halds og trausts er hjúkrunarfræðingurinn og næringarþerapistinn Þorbjörg Hafsteinsdóttir og heilsu- og hráfæðiskokkurinn Sólveig Eiríksdóttir.
Völu til halds og trausts er hjúkrunarfræðingurinn og næringarþerapistinn Þorbjörg Hafsteinsdóttir og heilsu- og hráfæðiskokkurinn Sólveig Eiríksdóttir.
Í þættinum Heilsugengið í umsjá Völu Matt sem hóf göngu sína á Stöð 2 í kvöld var bökuð gómsæt pítsa. Hér má sjá uppskriftina:

Kúrbítspítsa

Botninn:

2 bollar kúrbítur - rifinn fínt á rifjárni og síðan er vökvinn kreistur úr honum


3/4 bollar malaðar möndlur

1/4 bolli rifinn parmesan

1 msk chiafræ (möluð)

1 tsk oregano

1/2 tsk hvítlauksduft

1/4 tsk salt



Tómatsósa + ostur + pestó + rúkóla + hvítlauksolía (jómfrúar ólífuolía + hvítlaukur)

Heimagerð tómatsósa: 2 dl maukaðir tómatar (fínt að nota pastasósu með basiliku)

1 dl tómatpúrra

1-2 hvítlauksrif

1-2 tsk oregano Hráefninu í botninn er blandað saman í skál.

Deigið er síðan sett á bökunarpappír á ofnplötu. Mótið tvær minni pizzur eða eina stóra. Bakið við 180°C í 25 mínútur. Snúið við og bakið í 5-10 mínútur. Smyrjið svo sósunni á, stráið osti yfir og bakið aftur þar til osturinn hefur bráðnað.

Takið pítsuna út úr ofninum, smyrjið pestó á pítsuna, setjið rúkóla og hvítlauksolíu ofan á.

 - Njótið!








Fleiri fréttir

Sjá meira


×