Sport

Kúluvarpsmót á miðju hallargólfinu á morgun

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Pétur Guðmundssion setti metin sín í nóvember 1990.
Pétur Guðmundssion setti metin sín í nóvember 1990. Mynd/Brynjar Gauti

Pétur Guðmundsson bætti bæði Íslandsmetin í kúluvarpi fyrir 25 árum síðan og hann mun standa fyrir afmælismóti Íslandsmetanna á morgun í nýju Laugardalshöllinni. Mótið kallast Afmæliskastmót PG.

Pétur bætti bæði met Hreins Halldórssonar, Strandamannsins sterka, haustið 1990 en metin voru bæði orðin þrettán ára gömul þegar Pétur sló þau.

Hreinn hafði kastað 20,59 metra innanhúss og 21,09 metra utanhúss árið 1977. Pétur bætt bæði metin með því að kasta 20,66 metra innanhúss og 21,26 metra utanhúss.

Afmælismótið verður alþjóðlegt kúluvarpsmót og hefst klukkan 13.00 á morgun. Upphitun og kynning á keppendum hefst 12:30.

Kúluvarpið verður haldið á miðju hallargólfinu og það verða stúkur í kring svo stemmning verði enn betri. Frítt er á viðburðinn og tekur mótið um klukkutíma.

Enginn hefur náð metinu af Pétri á þessum aldafjórðungi og enginn hefur heldur náð að kasta lengra en Hreinn.  Óðinn Björn Þorsteinsson komst næst því þegar hann kastaði 19,83 metra utanhúss árið 2011 og 20,22 metra innanhúss árið 2012.

Óðinn Björn er einn af sjö keppendum sem eru skráðir til leiks á mótið en meðal þeirra eru Hollendingurinn Remco Goetheer og Írinn John Kelly. Óðinn Björn hefur kastað lengst og er því sigurstranglegastur á þessu móti.

Íslensku keppendurnir eru Guðni Valur Guðnason, Orri Davíðsson, Sindri Lárusson og Kristján Viktor Kristinsson.

Frétt DV um Íslandsmet Péturs Guðmundssonar í nóvember 1990.
Frétt um Íslandsmet Péturs í DV í nóvember 1990.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×