Glamour

Kryddpía skírði soninn í höfuðið á George Michael

Ritstjórn skrifar
getty
Kryddpían Geri Halliwell eignaðist strák í gærmorgun. Drengurinn hefur verið nefndur Montague George Hector. Samkvæmt tilkynningu er millinafn hans tileinkað söngvaranum George Michael, en þau Geri voru nánir vinir. 

Sagt er að Geri hafi viljað að George væri partur af lífi nýfædda drengsins. George Michael lést á jóladag fyrir tæpum mánuði síðan. 

Fallegt framlag hjá kryddpíunni sem er líklegast enn að syrgja náinn vin. 

Geri og George voru góðir vinir.





×