Lífið

Krúttlegasta ábreiða seinni ára? Feðgin negla Take on Me

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Þetta er stórkostlega krúttlegt.
Þetta er stórkostlega krúttlegt. Mynd/Skjáskot
Feðginin Matt og Amelia eru ansi hæfileikaríkir tónlistarmenn. Matt sér um YouTube-síðuna Free Dad Videos þar sem hann og dóttir hans taka ábreiður af þekktum lögum.

Nýjasta útgáfa þeirra er þeirra ábreiða af hinu ofurvinsæla 80's smell Take on Me frá frændum okkar í norsku hljómsveitinni Aha. Útkoman er ansi krúttleg og þrátt fyrir að Matt vinni mestu vinnuna er augljóst að útgáfan væri ekki jafn góð ef ekki væri fyrir óaðfinnanlegan hristuleik og bakraddasöng Ameliu litlu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×