Krummi tryggir sér sæti í Hörpunni 29. apríl 2010 19:10
Blásvört, þjófótt og grimmileg vera hefur tryggt sér sæti fyrst allra í tónlistarhúsinu Hörpunni við hafnarbakkann í Reykjavík. Og er að fjölga sér. Lóa Pind Aldísardóttir freistaði þess í dag að heilsa upp á snemmbúinn tónleikagest. Það var blikksmiður í Hörpunni sem vakti athygli okkar á gestinum sem hefur tekið sér bólfestu ofarlega í hálfkaraðri tónlistarhöllinni, náungi sem alla jafna er líklegri til að hreiðra um sig í klettagjám, gljúfrum eða úfnu hrauni. Krumminn mun raunar einhver nýtnasti fugl sem um getur, dæmi eru um að hann geri sér að góðu ryðgaðar gaddavírsrúllur undir eggin. Að auki þykir hann útsjónarsamur og þjófóttur, að sögn fuglafræðings á Náttúrufræðistofnun, náði krummi að smokra splittum úr stillönsum utan á Fjölbraut í Breiðholti fyrir fáum árum, gerði úr þeim laup - og lagði iðnaðarmenn í bráða hættu með þjófnaðinum. Það er ekki einfalt að komast að hreiðrinu í Hörpunni og sjónvarpsvélin okkar náði ekki að sjá ofan í laupinn - það gat hins vegar Kári Brekason blikksmiður sem tók þessa mynd. Þrjú egg eru í hreiðrinu - en krumminn verpir samkvæmt þjóðsögunum níu nóttum fyrir sumar, sem sagt um miðjan apríl. Þess er því varla langt að bíða eggin klekist út og litlir hrafnsungar fari að tísta í Hörpunni.
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Marius látinn laus Erlent Fleiri fréttir „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi Sjá meira