Fótbolti

Kroos framlengir við Real

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Toni Kroos.
Toni Kroos. vísir/getty
Þýski miðjumaðurinn Toni Kroos skrifaði í dag undir nýjan samning við spænska stórliðið, Real Madrid.

Nýi samningur Kroos við félagið er til ársins 2022 en hann kom til Real árið 2014 frá Bayern. Hann hefur skorað fjögur mörk í 108 leikjum fyrir félagið.

Kroos var orðaður við Man. Utd fyrr á árinu en nú er ljóst að hann er ekki á förum til Englands á næstunni.

Spænska blaðið AS segir að Kroos verði með tæpar 49 milljónir króna í vikulaun á nýja samningnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×