Fótbolti

Kroos á leiðinni til Real Madrid

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Toni Kroos, leikmaður þýska landsliðsins og Bayern Munchen, staðfesti eftir leik Þýskalands og Argentínu í gær í viðtali við brasilíska fjölmiðilinn UOL að hann væri á förum til Real Madrid.

Þrátt fyrir að vera aðeins 24 ára hefur Kroos leikið rúmlega 200 leiki fyrir Bayern Munchen í öllum keppnum. Gekk hann til liðs við Bayern þegar hann var 16 ára en ljóst er að átta ára dvöl hans hjá félaginu lýkur í sumar.

Kroos átti aðeins eitt ár eftir af samningi sínum hjá Bayern og hafði hann verið orðaður við flest af stærstu liðum Evrópu undanfarnar vikur. Hann vildi hinsvegar lítið tjá sig á meðan Heimsmeistaramótinu stóð en staðfesti loksins í gær að hann væri á förum frá þýsku meisturunum.

„Við hefðum ekki getað endað mótið betur. Nú get ég staðfest að ég er að fara til Madríd og það uppfyllir annan draum,“ sagði Kroos.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×