Innlent

Kríu og lunda fjölgar í Flatey á Skjálfanda

Kristján Már Unnarsson skrifar
Kríu hefur fjölgað á ný við Skjálfanda í sumar og gamlir Flateyingar segja kríufjöldann í eynni nú gríðarlegan. Lundastofninn hefur einnig stækkað. Þetta kom fram í frétt Stöðvar 2 úr Flatey á Skjálfanda en þar var rætt við Flateyinginn Guðmund Aðalbjörn Hólmgeirsson. 

Það er brátt hálf öld frá því fastri búsetu lauk í Flatey á Skjálfanda. Brottfluttir Flateyingar og afkomendur halda þó vel við gömlu húsunum og dvelja þar langdvölum á sumrin.

Úr Flatey á Skjálfanda. Kirkjan gnæfir yfir en neðst er íshúsið.Stöð 2/Friðrik Þór Halldórsson.
Þarna er einnig fuglaparadís og kríugerið fangar athygli okkar.

„Þetta er svona með meiri fjölda af kríum sem ég hef séð í eyjunni undanfarin ár,” segir Alli Hólmgeirs, eins og Húsvíkingar kalla hann.

Og hefur hann þó samanburðinn, eftir að hafa búið í Flatey fyrstu tuttugu ár ævi sínnar og síðan dvalið þar meira og minna á sumrin undanfarin fimmtíu ár. Hann segir alltaf hafa verið sveiflur í kríustofninum. 

„Reyndar alltaf verið mikil kría hérna en þó mjög mismunandi eftir því hvernig árar. Núna er gríðarlegur fjöldi."

Flatey á Skjálfanda er undan Flateyjardal. Eyjan fór í eyði árið 1967.Stöð 2/Friðrik Þór Halldórsson.
„Lundanum fer líka fjölgandi hér. Þannig að þeir virðast eiga auðvelt með að sækja æti í kringum eyjuna. Það leynir sér ekki.”

Guðmundur sér athyglisverða breytingu á lundastofninum, hann geri sér nú lundaholur á mun fleiri stöðum í eynni en áður þegar þar var föst búseta manna.

-Skynjið þið það á lífríkinu hér í Skjálfanda að það er meiri fæða þar?

„Það virðist vera. Hvalirnir náttúrlega segja líka sína sögu í því. Það er óvenju mikill fjöldi af þeim. Steypireyður og hnúfubakur og fleira. Þeir virðast sækja æti bæði inn að sandi og svo út með fjöllunum líka, norður flóann. Þannig að þetta virðist vera mjög líflegt,” segir Flateyingurinn Guðmundur Aðalbjörn Hólmgeirsson.

Lundinn hefur breitt úr sér í Flatey eftir að byggð manna lagðist af.Stöð 2/Friðrik Þór Halldórsson.

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×