Innlent

Kristján Þór skipaður samstarfsráðherra Norðurlanda

atli ísleifsson skrifar
Kristján Þór Júlíusson mennta- og menningarmálaráðherra.
Kristján Þór Júlíusson mennta- og menningarmálaráðherra. vísir/pjetur
Ríkisstjórnin samþykkti í morgun að skipa Kristján Þór Júlíusson mennta- og menningarmálaráðherra í embætti samstarfsráðherra Norðurlanda.

Samstarfsráðherra ber ábyrgð á norrænu ríkisstjórnarsamstarfi innan Norrænu ráðherranefndarinnar fyrir hönd forsætisráðherra.

Í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu segir að saman fari samstarfsráðherrar hverrar þjóðar með stjórn norræna ríkisstjórnarsamstarfsins og taki stefnumótandi ákvarðanir.

„Norræna ráðherranefndin var stofnuð árið 1971. Markmiðið með norrænu samstarfi er annars vegar að gera Norðurlöndin aðlaðandi til búsetu, atvinnu og fyrirtækjarekstur og hins vegar að efla norrænu ríkin á alþjóðavettvangi. Samstarfið er fjölþætt, meðal annars á sviði rannsókna, umhverfismála, velferðar og menningar.

Fulltrúar ríkisstjórna Norðurlanda hittast í ráðherranefndinni og móta meðal annars norræna samninga og sáttmála. Á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar starfa tíu nefndir fagráðherra, sem hittast reglulega og ræða sameiginleg málefni,“ segir í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×