Golf

Kristján og Ragnhildur hrósuðu sigri á Honda Classic mótinu

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Kristján Þór og Ragnhildur
Kristján Þór og Ragnhildur mynd/golf.is
Kristján Þór Einarsson, GM, og Ragnhildur Kristinsdóttir, GR, hrósuðu sigri á Honda Classic mótinu á Eimskipsmótaröðinni. Þetta er annað mót tímabilsins 2016-2017 á Eimskipsmótaröðinni og fór það fram á Garðavelli á Akranesi.

Kristján Þór lék á samtals sjö höggum undir pari og og setti nýtt vallarmet. Hann bætti vallarmetið um eitt högg en það var í eigu Magnúsar Lárussonar úr GJÓ og Þórðar Rafns Gissurarsonar úr GR.

Heiðar Davíð Bragason, GHD, varð annar á +3 eða 10 höggum á eftir Kristjáni. Andri Már Óskarsson, Jóhannes Guðmundsson og Þórður Rafn Gissurarson voru jafnir í 3.-5. sæti.

Ragnhildur tryggði sér öruggan sigur í kvennaflokki þrátt fyrir að hafa leikið lokahringinn á 81 höggi. Þetta er annar sigur hennar á Eimskipsmótaröðinni frá upphafi en Ragnhildur er fædd árið 1997.

Hafdís Alda Jóhannsdóttir úr GK varð önnur og Eva Karen Björnsdóttir úr GR þriðja. Þetta er í fyrsta skipti sem Hafdís Alda og Eva Karen eru á verðlaunapalli á Eimskipsmótaröðinni.

Lokastaðan:

1. Kristján Þór Einarsson, GM (73-71-65) 209 högg -7

2. Heiðar Davíð Bragason, GHD (71-75-73) 219 högg +3

3.-5 Andri Már Óskarsson, GHR (74-79-69) 222 högg +6

3.-5. Jóhannes Guðmundsson, GR (76-74-72) 222 högg +6

3.-5. Þórður Rafn Gissurarson, GR (73-72-77) 222 högg +6

6. Stefán Már Stefánsson, GR (72-73 -78) 223 högg +7

7. Vikar Jónasson, GK (76-74 -76) 226 högg +10

8.-11 Björn Óskar Guðjónsson, GM (81-74-72) 227 högg +11

8.-11.. Tumi Hrafn Kúld, GA (78-75-74) 227 högg +11

8.-11. Viktor Ingi Einarsson, GR (79-73-75) 227 högg +11

8.-11. Eggert Kristján Kristmundsson, GR (78-72-77) 227 högg +11

1. Ragnhildur Kristinsdóttir, GR (77-71-81) 229 högg +13

2. Hafdís Alda Jóhannsdóttir, GK (80-74-83) 237 högg +21

3. Eva Karen Björnsdóttir, GR (82-81-82) 245 högg +29

4. -5.Anna Sólveig Snorradóttir, GK (82-87-79) 248 högg +32

4.-5. Halla Björk Ragnarsdóttir, GR (83-85-80) 248 högg +32

6. Andrea Ýr Ásmundsdóttir, GA (91-80-78) 249 högg +33




Fleiri fréttir

Sjá meira


×