Íslenski boltinn

Kristján hættur með Leikni

Stefán Árni Pálsson skrifar
Kristján Guðmundsson er hættur.
Kristján Guðmundsson er hættur. vísir/daníel
Kristján Guðmundsson er hættur sem þjálfari Leiknis en Inkasso-deildinni lauk í dag og gerði liðið markalaust jafntefli við Keflavík í lokaumferðinni.

„Samningurinn okkar rennur út núna í næstu viku og við tókum léttan spjallfund með stjórn og niðurstaðan er sú að við munum ekki endurnýja samninginn,“ sagði Kristján í samtali við vefsíðuna Fótbolta.net

„Núna er samstarfi okkar lokið og það kemur alltaf eitthvað upp" bætti hann við aðspurður um næstu skref,“ bætir hann við.

Leiknir hafnaði í sjöunda sæti deildarinnar með 29 stig, 22 stigum á eftir KA sem vann deildina. Leiknir féll úr Pepsi-deildinni á síðasta ári og ætlaði liðið sér beint upp aftur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×