Fótbolti

Kristján Gauti aftur á leið í atvinnumennsku?

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Kristján Gauti hefur áður reynt fyrir sér í atvinnumennsku, hjá Liverpool
Kristján Gauti hefur áður reynt fyrir sér í atvinnumennsku, hjá Liverpool vísir/vilhelm
Hollenski fjölmiðillinn Omroep greindi frá því í gærkvöldi að knattspyrnukappinn Kristján Gauti Emilsson úr FH gæti verið á leið til hollenska fyrstu deildarfélagsins NEC Nijmegen sem féll úr úrvalsdeildinni í vor. Fótbolti.net greindi frá þessu í gærkvöldi.

Kristján sá NEC mæta AZ í æfingaleik í gær hefur hollenski fjölmiðillinn eftir Kristjáni að hann sé að skoða aðstæður og svo gæti farið að hann semji við félagið.

Fari svo að Kristján Gauti ákveði að ganga til liðs við NEC yrði það mikil blóðtaka fyrir FH en Kristján Gauti hefur leikið mjög vel í sumar og verið lykilmaður í velgengi liðsins í deild og Evrópukeppni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×