Íslenski boltinn

Kristján endurnýjar kynnin við Jónas Tór

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Jónas Tór í leik með Val sumarið 2013.
Jónas Tór í leik með Val sumarið 2013. vísir/arnþór
Færeyski landsliðsmaðurinn Jónas Tór Næs hefur skrifað undir tveggja ára samning við ÍBV.

Kristján Guðmundsson, þjálfari ÍBV, staðfesti þetta í samtali við Fótbolta.net í dag.

Kristján þekkir vel til Jónasar en hann fékk hann til Vals 2011. Jónas lék í þrjú ár með Val, alls 51 leik í Pepsi-deildinni og skoraði eitt mark.

Jónas, sem varð þrítugur í gær, hefur leikið í heimalandinu frá því hann yfirgaf Val. Hann á að baki 48 landsleiki fyrir Færeyjar.

Jónas er annar Færeyingurinn sem Kristján nær í en í nóvember samdi Kaj Leó í Bartalsstovu við ÍBV. Hann lék með FH seinni hluta síðasta tímabils.


Tengdar fréttir

Kaj Leó frá FH í ÍBV

Færeyski landsliðsmaðurinn spilar áfram í Pepsi-deildinni en færir sig úr Hafnarfirði til Vestmannaeyja.

Kristján tekur við ÍBV

Kristján Guðmundsson hefur verið ráðinn þjálfari ÍBV sem leikur í Pepsi-deild karla í knattspyrnu.

ÍBV safnar liði

ÍBV hefur bætt við sig tveimur leikmönnum fyrir átökin í Pepsi-deild karla næsta sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×