Viðskipti innlent

Kristján ber Isavia þungum sökum

ingvar haraldsson skrifar
ristján Jóhannsson, formaður Félags flugmálastarfsmanna ríkisins, segir Isavia reyna að skipta upp starfsmönnum fyrirtækisins í fjölda verkalýðsfélaga svo erfiðara sé fyrir starfsmenn fyrirtækisins að fara í verkfall. Þessu hafnar Friðþór Eydal, talsmaður Isavia.
ristján Jóhannsson, formaður Félags flugmálastarfsmanna ríkisins, segir Isavia reyna að skipta upp starfsmönnum fyrirtækisins í fjölda verkalýðsfélaga svo erfiðara sé fyrir starfsmenn fyrirtækisins að fara í verkfall. Þessu hafnar Friðþór Eydal, talsmaður Isavia. vísir/daníel/gva
Kristján Jóhannsson, formaður og framkvæmdastjóri Félags flugmálastarfsmanna ríkisins (SFF) segir Isavia reyna að skipta upp starfsmönnum fyrirtækisins í fjölda mismunandi verkalýðsfélaga með mislanga kjarasamninga svo erfiðara sé fyrir starfsmenn fyrirtækisins að fara í verkfall.

Isavia réð í tíu störf við rútuakstur milli flugvéla og flugstöðvar um síðustu áramót. Störfin hafi áður verið unnin samkvæmt kjarasamningi SFF en nú hafi verið ráðin í samkvæmt kjarasamningi Verkalýðs- og sjómannafélagsins. Sá kjarasamningur kveður á um mun lægri launum en kjarasamningur SFF að sögn Kristjáns. „Með þessu er búið að skipta okkur upp. Félagsmenn Verkalýðs- og sjómannafélagsins eru í ASÍ en okkar félagsmenn eru allir í BSRB,“ segir Kristján.

Kristján segir Isavia brennda vegna verkfalls sem flugvallarstarfsmenn fóru í á síðasta ári. „Þeir urðu fyrir skaða í verkfallinu þó þeir viðurkenni það ekki. Við vorum þrjú félög sem fórum í verkfall. Það var FFR, SFR með sína 50 félagsmenn og Landsamband slökkviliðs og sjúkraflutningamanna. Það er verið koma því þannig fyrir að félögin geti ekki sameinast með því að dreifa fólki í mörg misumunandi stéttarfélög með mismunandi gildistíma á samningi,“ segir Kristján.

Unnið er að viðbyggingu við Keflavíkurflugvöll þar sem farþegum verður einvörðungu ekið í rútum milli flugstöðvar og flugvéla. Nýráðnir starfsmenn Isavia munu þjónusta viðbygginguna.vísir/vilhelm
Hafnar ásökunum um óeðlilega viðskiptahætti

Friðþór Eydal, talsmaður Isavia, þvertekur fyrir að verið sé að skipta starfsmönnum Isavia upp. „Það er langt því frá að það sé verið að sneiða hjá eða hegna einu eða öðru stéttarfélaga enda væri það væri fyllilega óeðlilegt,“ segir hann.

Friðþór segir að við breytingarnar um áramótin hafi störfin hafi verið skilgreind sem farþegaakstur og þá sé Isavia bundið af kjarasamningi Samtaka atvinnulífsins og Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur. Fram að áramótum hafi ekki verið ráðið í þessi störf sérstaklega og heldur hafi flugvallarstarfsmenn sinnt akstrinum meðfram öðrum störfum verkefnum og fengið greitt samkvæmt kjarasamningi SFF.

„Aðalmálið í þessu er ráðið í þessi störf á grundvelli kjarasamnings SA og Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur.Í þeim kjarasamningi er kveðið á forgangsrétt  Verkalýðs- og sjómannafélagsins til starfa við farþegaakstur. Isavia er bundið af þeim samningi,“ segir Friðþór.


Tengdar fréttir

Vilja að Isavia virði kjarasamninga

BSRB vill brýna fyrir forsvarsmönnum Isavia að virða kjarasamningsbundinn réttindi starfsmanna sinna í ljósi dóma sem fallið hafa gegn fyrirtækinu.

Keflavíkurflugvöllur eftir 25 ár

Flugstöðin verður stækkuð til norðurs og lögð verður ný norður-suður flugbraut vestan við flugvöllinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×