Menning

Kristinn Sigmunds með Íslensku óperunni í fyrsta skipti í tólf ár

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Stórsöngvarinn Kristinn mun taka á því sem Filippus konungur í haust.
Stórsöngvarinn Kristinn mun taka á því sem Filippus konungur í haust. Fréttablaðið/Vilhelm
Kristinn Sigmundsson tekur þátt í óperuuppfærslu Íslensku óperunnar í haust í fyrsta sinn í tólf ár þegar Don Carlo eftir Verdi fer á svið.

Don Carlo er ein af umfangsmestu óperum Verdis og hefur aldrei verið sviðsett á Íslandi áður. Eingöngu íslenskir söngvarar taka þátt í sýningunni.

Fyrir utan Kristin, sem fer með voldugt bassahlutverk Filippusar konungs og föður Don Carlo, má nefna Jóhann Friðgeir Valdimarsson í titilhlutverkinu og Helgu Rós Indriðadóttur, sem einnig snýr aftur á íslenskt óperusvið eftir nokkurt hlé, í hlutverki Elísabetar drottningar.

Oddur Arnþór Jónsson, sem nýverið lauk söngnámi frá Mozarteum í Salzburg og sópar að sér spennandi verkefnum um þessar mundir, verður í hlutverki Rodrigo.

Auk þess syngja Hanna Dóra Sturludóttir, Guðjón Óskarsson, Viðar Gunnarsson, Erla Björg Káradóttir og Hallveig Rúnarsdóttir í sýningunni.

Þórhildur Þorleifsdóttir leikstýrir Don Carlo og hefur Pál Ragnarsson ljósahönnuð og Þórunni Sigríði Þorgrímsdóttur, búninga- og leikmyndahöfund, sér til fulltingis.

Guðmundur Óli Gunnarsson verður hljómsveitarstjóri.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×