Fótbolti

Kristinn og félagar björguðu stigi gegn Gautaborg

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Kristinn í baráttu við Kristinn Inga Halldórsson í Pepsi-deildinni síðasta sumar.
Kristinn í baráttu við Kristinn Inga Halldórsson í Pepsi-deildinni síðasta sumar. Vísir/Ernir
Kristinn Jónsson og félagar hans í Brommapojkarna gerðu jafntefli, 1-1, gegn IFK Gautaborg í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.

Gestirnir frá Gautaborg komust yfir á 13. mínútu leiksins með marki RobinsSöders en Pontus Segerström skoraði jöfnunarmarkið fyrir heimamenn tólf mínútum fyrir leikslok.

Kristinn spilaði allan leikinn í vörninni hjá Brommapojkarna en HjálmarJónsson, sem hefur verið fastamaður í vörn Gautaborgar um árabil, sat allan tímann á bekknum annan leikinn í röð.

Þetta var fyrsta stigið sem Brommapojkarna innbyrðir í fyrstu þremur umferðum deildarinnar en liðið er í 14. sæti. IFK Gautaborg er í 10. sæti með fjögur stig eftir þrjár umferðir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×