Íslenski boltinn

Kristinn Freyr: Ekki að hugsa um Sundsvall sem stökkpall

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Kristinn Freyr í baráttu í leik Vals og Breiðabliks í sumar.
Kristinn Freyr í baráttu í leik Vals og Breiðabliks í sumar. Vísir/Anton
Kristinn Freyr Sigurðsson gerði í morgun þriggja ára samning við sænska úrvalsdeildarfélagið Sundsvall eins og áður hefur verið greint frá.

Hann segist vera spenntur fyrir nýrri áskorun á sínum ferli en hann hefur nú lengi stefnt að því að komast að hjá atvinnumannaliði ytra.

„Ég er mjög ánægður. Loksins er ég kominn með lið. Ég er spenntur fyrir framhaldinu,“ sagði Kristinn Freyr í samtali við Vísi í dag.

Sjá einnig: Kristinn Freyr genginn í raðir Sundsvall

Hann segist hafa fundið fyrir miklum áhuga hjá forráðamönnum Sundsvall þegar hann skoðaði aðstæður hjá félaginu og að það hafi haft mikið að segja.

Kristinn Freyr Sigurðsson er farinn í atvinnumennskuna.vísir/anton brink
„Það var mikill áhugi og hefur verið lengi. Það heillaði mig mikið,“ segir Kristinn Freyr en viðræðuferlið hefur staðið yfir í nokkurn tíma. „Það er eins og gengur og gerist. Báðir aðilar verða að vera sáttir og þetta endaði þannig að ég er sáttur við það sem þeir buðu mér.“

Vil bara spila vel


Meðal fyrrverandi leikmanna GIF Sundsvall má nefna Ara Frey Skúlason, Rúnar Má Sigurjónsson og Jón Guðna Fjóluson sem eru allir að spila með sterkari liðum í dag. Kristinn Freyr segir að það sé gott að vita af því að Íslendingar hafi áður staðið sig vel hjá félaginu.

Sjá einnig: Kristinn Freyr með samningstilboð frá Sundsvall

„En ég er ekkert að pæla í því hvar þeir eru í dag. Fyrst og fremst ætla ég að hugsa um að standa mig vel hjá Sundsvall. Ég er ekki að hugsa um þetta lið sem stökkpall fyrir mig. Ég vil bara spila vel,“ sagði hann.

Sundsvall hafnaði í þrettánda sæti sænsku úrvalsdeildarinnar í haust og liðið stefnir hærra á næstu leiktíð. „Það er mikill hugur í mönnum og það er allt til alls til að gera betur. Ég er spenntur fyrir framhaldinu.“



FH lagði fram tilboð

Kristinn Freyr er 24 ára uppalinn Fjölnismaður en hann gekk í raðir Vals fyrir tímabilið 2012. Hann blómstraði í sumar, skoraði fjórtán mörk og var valinn besti leikmaður deildarinnar.

Hann varð samningslaus í lok tímabilsins og en beið með viðræður við íslensk lið þar til að ljóst yrði hvort hann fengi tækifæri utan landsteinanna.

Sjá einnig: FH-ingar hafa rætt við Kristin Frey

„Valur og FH sýndu mér áhuga,“ segir Kristinn Freyr sem staðfestir að hann hafi fengið tilboð frá FH, sem og öðru liði. „En hitt var í algjörum forgangi hjá mér og því fór ég aldrei í neinar viðræður við íslensk lið.“


Tengdar fréttir

Kristinn Freyr: Þetta var siðlaust, ég viðurkenni það

Kristinn Freyr Sigurðsson var enn og aftur á skotskónum með Valsmönnum í kvöld þegar þeir mættu KR. Hann skoraði bæði mörkin í 2-0 sigri þegar Valsarar unnu sinn þriðja sigur í röð í Pepsi-deildinni.

FH-ingar hafa rætt við Kristin Frey

Kristinn Freyr Sigurðsson fór á kostum með bikarmeisturum Vals í Pepsi-deild karla í fótbolta í sumar og það þarf ekki að koma á óvart að bæði lið hérlendis sem og erlendis hafi áhuga á kappanum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×