Íslenski boltinn

Kristinn: Við erum KR - ekki Fram

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Bjarni, Kristinn og Guðmundur.
Bjarni, Kristinn og Guðmundur. Vísir/Vilhelm
Kristinn Kjærnested, formaður knattspyrnudeildar KR, hefur fulla trú á því að Bjarni Guðjónsson sé rétti maðurinn til að taka við keflinu af Rúnari Kristinssyni.

Rúnar hætti á dögunum sem þjálfari KR eftir fjögur og hálft ár í starfi þar sem hann skilaði samtals fimm stórum titlum í vesturbæinn.

Bjarni var í dag ráðinn þjálfari liðsins aðeins rúmu ári eftir að hann lagði skóna á hilluna, þá sem laikmaður KR. Í sumar starfaði hann sem þjálfari Fram sem féll úr Pepsi-deild karla.

„Það er alltaf pressa á öllum þeim sem koma og starfa fyrir KR. Þannig viljum við hafa það,“ sagði Kristinn í samtali við KR. „Við horfum bara á okkur. Við erum KR - ekki Fram, með fullri virðingu fyrir þeim.“

„Við þekkjum Bjarna enda var hann lengi hér sem leikmaður. Við vitum fyrir hvað hann stendur og treystum honum í verkið. Það eru alltaf skiptar skoðanir á þjálfararáðningum KR og þannig er það sjálfsagt nú.“

Kristinn bendir á að Rúnar hafi verið óreyndur þjálfari þegar KR réði hann á sínum tíma. „Ég man þegar ég fékk símtal frá ákveðnum manni árið 2010. Þá var ég að keyra í Ártúnsbrekkunni og við vorum nýbúnir að tapa fyrir FH, 4-0, í bikarnum. Hann spurði mig hvort við værum kolruglaðir og hvort það hefðu ekki verið mistök að láta Rúnar fá starfið. En hann hefur ekki hringt síðan.“

Guðmundur var síðast aðalþjálfari Breiðabliks eftir að hafa verið aðstoðarþjálfari Ólafs Kristjánssonar í nokkur ár.

„Ég trúi því að bæði Bjarni og Guðmundur hafi fengið góða reynslu í sumar þegar þeir stigu inn á stóra sviðið. Það er svo okkar sem höldum þessu batteríi gangandi að styðja við þá í þeirra störfum og það ætlum við að gera.“

Í dag var einnig gengið frá ráðningu Óskars Hrafns Þorvaldssonar sem tekur við 2. flokki karla auk þess að vera þeim Bjarna og Guðmundi innan handar.

„Það sem heillar okkur við Óskar er að hann hefur mjög sterkar skoðanir og er fylginn sér. Ég held að  hann eigi eftir að koma með góðar víddir inn í samstarf þeirra Bjarna og Guðmundar. Við erum mjög spenntir fyrir því að fá hann.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×