Handbolti

Kristín skoraði sextán mörk | Myndir

Kristín skorar hér eitt af sextán mörkum sínum í kvöld.
Kristín skorar hér eitt af sextán mörkum sínum í kvöld. vísir/vilhelm
Kristín Guðmundsdóttir Valskona var í vígahug í kvöld og skoraði heil sextán mörk í óvæntum sigri Vals á Fram sem var í toppsæti deildarinnar fyrir kvöldið.

Aðeins annar tapleikur Fram í vetur og Valur komst upp að hlið Hauka í fimmta sætinu með sigrinum.

Grótta vann nauman sigur á Haukum og er því komin með tveggja stiga forskot á toppi deildarinnar.

Hér að ofan má sjá myndir Vilhelms Gunnarssonar úr leik Fram og Vals sem og leik Hauka og Gróttu.

Úrslit kvöldsins:

ÍBV-Fylkir  33-34

Mörk ÍBV: Ester Óskarsdóttir 10, Jóna Sigríður Halldórsdóttir 7, Díana Dögg Magnúsdóttir 5, Telma Amado 4, Vera Lopes 3, Drífa Þorvaldsdóttir 3, Elín Anna Baldursdóttir 1.

Mörk Fylkis: Patricia Szölösi 13, Thea Imani Sturludóttir 8, Hildur Björnsdóttir 5, Ólöf Kristín Þorsteinsdóttir 4, Hafdís Shuzuka Iura 3, Kristjana Björk Steinarsdóttir 1.

KA/Þór-HK  26-31

Mörk KA/Þórs: Martha Hermannsdóttir 9, Paula Chirila 4, Þórunn Eva Sigurbjörnsdóttir 4, Birta Fönn Sveinsdóttir 3, Erla Hleiður Tryggvadóttir 2, Arna Kristín Einarsdóttir 2, Arna Valgerður Erlingsdóttir 1, Katrín Vilhjálmsdóttir 1.

Mörk HK: Emma Havin Sardarsdóttir 7, Sigríður Hauksdóttir 7, Gerður Arinbjarnar 5, Eva Hrund Harðardóttir 3, Hulda Tryggvadóttir 3, Valgerður Ýr Þorsteinsdóttir 3, Sóley Ívarsdóttir 2, Heiðrún Helgadóttir 1.

Selfoss-Stjarnan  19-26

Mörk Selfoss: Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir 6, Þuríður Guðjónsdóttir 4, Helga Rún Einarsdóttir 3, Hildur Öder Einarsdóttir 2, Carmen Palamariu 2, Margrét Katrín Jónsdóttir 1.

Mörk Stjörnunnar: Nataly Sæunn Valencia 7, Guðrún Erla Bjarnadóttir 4, Arna Björk Almarsdóttir 3, Helena Rut Örvarsdóttir 3, Þórhildur Gunnarsdóttir 3, Sandra Sif Sigurjónsdóttir 2, Esther Viktoría Ragnarsdóttir 2, Arna Nadía Pálsdóttir 1, Hanna Guðrún Stefánsdóttir 1.

Haukar-Grótta  25-27

Mörk Hauka: Marija Gedroit 6, Sjöfn Ragnarsdóttir 5, Karen Helga Díönudóttir 5, Ragnheiður Sveinsdóttir 5, Ásta Björk Agnarsdóttir 3, Ragnheiður Ragnarsdóttir 1.

Mörk Gróttu: Laufey Ásta Guðmundsdóttir 12, Karólína Bæhrenz Lárudóttir 6, Anna Úrsula Guðmundsdóttir 4, Anett Köbli 2, Eva Björk Davíðsdóttir 2, Arndís María Erlingsdóttir 1.

FH-ÍR   17-17

Mörk FH: Ingibjörg Pálmadóttir 4, Rebekka Guðmundsdóttir 4, Heiðdís Guðmundsdóttir 3, Aníta Ægisdóttir 3, Sara Kristjánsdóttir 3.

Mörk ÍR: Brynhildur Kjartansdóttir 6, Sif Maríudóttir 4, Sigrún Ása Arngrímsdóttir 3, Sólveig Kristjánsdóttir 2, Auður Pálsdóttir 1, Helena Jónsdóttir 1.

Fram-Valur  23-26

Mörk Fram: Hulda Dagsdóttir 7, Ragnheiður Júlíusdóttir 5, Steinunn Björnsdóttir 3, Hekla Rún Ámundadóttir 2, Marthe Sördal 2, Elísabet Gunnarsdóttir 2, Guðrún Þóra Hálfdánsdóttir 1.

Mörk Vals: Kristín Guðmundsdóttir 16, Morgan Marie Þorkelsdóttir 3, Bryndís Elín Wohler 2, Hildur Marín Andrésdóttir 1, Aðalheiður Hreinsdóttir 1, Marija Mugosa 1, Sigurlaug Rúnarsdóttir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×