Handbolti

Kristín með níu mörk fyrir Val í kvöld | Myndir

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Kristín Guðmundsdóttir skoraði níu mörk fyrir Val í kvöld þegar liðið vann fjögurra marka heimasigur á HK í Olís-deild kvenna í handbolta en þetta var fyrstu leikurinn í tólftu umferð.

Ernir Eyjólfsson, ljósmyndari Vísis og Fréttablaðsins var á leiknum á Hlíðarenda í kvöld og náði þessum myndum hér fyrir ofan.

Valskonur komust með þessum sigri upp fyrir Fylki og upp í sjötta sæti deildarinnar en HK-konur áttu mögulega að komast upp fyrir Valsliðið með sigri.

HK-liðið byrjaði vel og var einu marki yfir í hálfleik en Valskonur voru sterkari í seinni hálfleiknum með hina leikreyndu Kristínu Guðmundsdóttur í fararbroddi.

Valskonur hafa því byrjað árið á tveimur sigurleikjum en liðið vann útisigur á selfossi í fyrsta leiknum sínum á árinu 2015.



Valur - HK 24-20 (9-10)

Mörk Vals: Kristín Guðmundsdóttir 9, Morgan Marie McDonald 5, Íris Ásta Pétursdóttir 3, Aðalheiður Hreinsdóttir 2, Sólveig Lóa Höskuldsdóttir 2, Marija Mugsoa 1, Sigurlaug Rúnarsdóttir 1, Bryndís Elín Wöhler 1.

Mörk HK: Emma Havin Sardarsdóttir  5, Gerður Arinbjarnar 4, Sóley Ívarsdóttir 4, Þórhildur Braga Þórðardóttir 3, Sigríður Hauksdóttir 2, Eva Hrund Harðardóttir 2.

Morgan Marie McDonald skoraði fimm mörk fyrir Val í kvöld. Vísir/Ernir



Fleiri fréttir

Sjá meira


×